Rakvélar - Hvað hentar mér?

Flestar rakvélarnar okkar eru frá þýska framleiðandanum Mühle. Algengustu hausarnir eða kambarnir frá þeim eru annars vegar lokaður haus, sem gengur undir nafninu R89, og hins vegar opinn haus, kallaður R41. Handföngin eru mun fjölbreyttari og þar skiptir mestu máli hvað fer vel í þinni hendi og hvað þér þykir fallegt.

 

Við mælum alltaf með lokuðum haus/kambi fyrir þá sem hafa ekki rakað sig áður en þessi haus hentar einnig flestum alla tíð.

R41, tennti og opni hausinn, var sérstaklega hannaður með þá í huga sem hafa reynslu af rakstri og hentar vel þeim sem eru með þéttan og sterkan skeggvöxt. Vegna þess að hausinn er opnari festast hár og sápa minna í hausnum sem hentar vel þegar menn raka sig sjaldnar og skeggvöxturinn er orðinn meiri. Þá þarf sjaldnar að skola af hausnum á meðan á rakstri stendur. Blaðið er berarar sem veldur því að sá sem rakar sig finnur meira fyrir því að blaðið rennur yfir húðina sem sumum finnst óþægilegra. 

Hér má sjá allar vörur með R89 og hér með R41.

 

 

Nýjasta rakvélin úr smiðju Mühle er Companion sem er enn mildari en R89. Handfangið er auk þess munstrað svo gripið er mjög gott. Það sem er sérstakt við þessa rakvél er að hún var hönnuð með mun meira en bara skegghár í huga. Hún hentar því vel fyrir öll kyn og flesta líkamsparta. 

 

 

Við erum einlægir aðdáendur þessara rakvéla enda er þær gæðavara auk þess að vera umhverfisvænni og ódýrari til lengri tíma litið en fjölblaða rakvélar.

Mühle - Razor Blades - Rakvélablöð

 

Blöðin í rakvélar eins og þessar hafa verið stöðluð í áratugi og því er hægt að prófa sig áfram með mismunandi blöð og finna hvað hentar þér best. Algengt verð á 10 blaða pakka er um 1.000 kr. 

Að auki erum við með nokkur eintök af Merkur vélum í verslun okkar í Hamraborg 9 sem og rakhnífa ásamt því sem þeim fylgir.

 

 

 

Leit