Í grunninn gilda sömu lögmál þegar raka á fætur eða aðra líkamsparta eins og þegar skegg er rakað. Þó eru nokkur atriði sem er gott að ræða. Endilega skoðaðu þessa síðu um rakstur líka.

Undirbúningur
Rétt eins og með skegghárin skiptir miklu máli að hita húðina vel og þar sem við erum oft að raka stærra svæði en andlitið þarf að passa sérstaklega vel að húðin kólni ekki eða raksápan þorni. Því getur verið gott að setja aðeins raksápu á hluta þess svæðis sem á að raka í einu.
Með því að nota rakbursta auðveldar þú aðgengi vélarinnar að hárunum og undirbýrð húðina fyrir raksturinn. Við mælum alltaf með því að nota rakbursta, sérstaklega ef þú ert með viðkvæma húð eða hættir til að fá rakstursbruna, en fyrir marga virkar rakstursolía einnig vel. Olían hjálpar rakvélinni að renna auðveldlega yfir húðina en hún lyftir hárunum ekki upp. Meira um rakbursta og raksápur má lesa hér.
Rakvél
Rakvélar með lokuðum haus henta best fyrir líkamshár. Við erum einnig með rakvél frá Mühle sem er sérstaklega hugsuð til að raka bæði skegg og líkamshár, Companion. Hausinn á henni er mjög lokaður og því enn minni líkur á skurðum en með öðrum vélum. Það eina sem þarf að hafa í huga með þá vél er að hreinsa oft úr henni á meðan á rakstri stendur, sérstaklega ef hárin eru lengri en bara broddar. Þar sem hausinn er mjög lokaður festast hár og sápa frekar í kringum rakvélablaðið. Stundum getur verið gott að losa aðeins um skrúfganginn til að opna hausinn meðan verið er að skola hann og herða svo aftur (athugið þó að herða ekki of mikið því það getur skemmt skrúfganginn. Miðið við að hausinn snúist ekki þegar hann er lagður upp að húðinni en ekki beita afli við að skrúfa hann fastan).
Handfangið á Companion er sérstaklega langt og með munstri sem gefur gott grip og auðveldar aðgengi að mismunandi líkamspörtum.
Raksturinn
Almennt er ráðlagt að raka alltaf í sömu átt og hárið vex. Líkamshár eru gjarnan mýkri en skegghár og oft er hægt að raka á móti hárvextinum. Með því móti næst enn sléttari rakstur og silkimjúk húð. Við mælum þó ávallt með að byrja á því að fylgja vexti hársins og prófa sig áfram með lítil svæði til að sjá hvort þín húð þoli að láta raka á móti vextinum. Athugaðu einnig að eitt svæði líkamans getur þolað það á meðan önnur þola það ekki.
Fara þarf varlega á svæðum sem eru ekki alveg slétt. Þetta á t.d. við fyrir ofan kúluna á ökklanum og yfir hnén. Við mælum með að prófa fyrst á sléttum fleti sem er auðvelt að ná til. Það getur til dæmis verið á þægilegum stað á kálfa eða lærum. Bíðið með sköflunginn þar til þið hafið fengið góða tilfinningu fyrir rakstrinum á kálfanum.
Að mörgu leyti getur verið þægilegt að raka sig í sturtu enda hitinn nauðsynlegur fyrir góðan rakstur en þá þarf bara að hafa í huga að vatnið skoli raksápunni ekki burt meðan á rakstri stendur.
Eftir rakstur
Mikilvægt er að kæla húðina niður eftir rakstur til að hún loki sér. Eftir það borgar sig alltaf að bera aftershave balm á húðina eftir rakstur. Það sótthreinsar hana og mýkir.
!