Rakbursti - Traditional - Rose Gold - Silvertip greifingjahár

  • Rósagylltu vörurnar frá Mühle í Traditional línunni eru gullfallegar og klassískar. Fagurt munstrið í króminu gerir það einnig að verkum að rakvélin og burstinn fara ákaflega vel í hendi.

    Hárin:
    Silvertip badger hárin eru fínustu hárin af greifingjum, sérvalin í hárknippin, sem eru handunnin. Þetta dýrmæta náttúrulega efni er einkar mjúkt og sveigjanlegt.

    Hárin búa yfir þeim eiginleika að draga í sig mikið vatn og því verður auðveldara að ná upp góðri og þéttri froðu úr sápunni.

    Keilulaga form burstans er handgert og myndast þegar hárin eru bundin saman. Með þessari aðferð helst mýkt háranna því það þarf ekki að klippa þau til.

Leit