Rakbursti - Traditional - Chrome - Silvertip fiber hár

  • Traditional lína Mühle er gullfalleg og löngu orðin klassísk. Fallegt munstrið í króminu gerir það einnig að verkum að burstinn fer ákaflega vel í hendi.

    Hárin:
    Hárin eru fínustu Silvertip Fiber hár, þróuð af Mühle, og flestir eru sammála um að séu ekki síðri fínustu greifingjahárunum.

    Hárin eru einstaklega mjúk í endann en með mikinn styrkleika fyrir miðju háranna. Það skilar sér í mjúkri tilfinningu við húð þegar froðan er borin á, án þess að missa niður stífleikann sem gott er að hafa þegar verið er að vinna upp froðuna.

    Kostur Silvertip Fiber háranna felst ekki síst í því að þau þorna fyrr en greifingjahár og eru því ekki jafn viðkvæm.

Leit