Raksett - SOPHIST - Ironwood - Silvertip greifingjahár

Eins og nafnið Sophist gefur til kynna er þessi lína frá Mühle fáguð og falleg enda löngu orðin klassísk.

Eins og nafnið ironwood gefur til kynna er hér um að ræða einstaklega harðan við. Hinn geysilega mikli þéttleiki gerir viðinn sérlega þolinn. Dökkbrúni liturinn í bland við æðamynstrið skilar sér í silkimjúku og glansandi yfirbragði. Athugið að þar sem um lifandi við er að ræða er ekkert eintak eins.

Silvertip greifingjahárin eru fínustu hárin af greifingjum, sérvalin í hárknippin sem eru handunnin. Þetta dýrmæta náttúrulega efni er einkar mjúkt og sveigjanlegt.

Hér má sjá öll Sophist raksettin.

Hér má sjá alla bursta með Silvertip greifingjahárum og lesa nánar um þau.


Leit