Safety Razor - R89 - Grande - Rakvél

Mühle R89 rakvélarnar eru frábærar fyrir þá sem raka sig reglulega. Ekki bara hvað varðar gæði rakstursins heldur einnig kostnaðinn sem fylgir reglulegum rakstri. R89 rakvélin hentar flestum vel þar sem að auðvelt er að ná þéttum rakstri með henni en ekki þarf mikla æfingu til að ná góðri lagni á rakstrinum.

Grande er þriggja hluta skafa með lengra og breiðara skafti en aðrar sköfur frá Mühle og þar af leiðandi einnig þyngri. 

Minni þriggja hluta sköfur eru fáanlegar í krómsvörtu, tortoiseshell, rauðgylltu og gylltu.

Twist er skafa sem er í tveimur pörtum og er botninn skrúfaður til að losa hausinn. Grande og Twist fást einungis í króm.

Tengdar vörur:
Statíf fyrir rakvél

Króm bursti
Statíf fyrir bursta og sköfu

Leit