Gjafabox fyrir skallana - Bald Cream & No Hair Shampoo - Skallakrem og Skallasjampó

  • Gjafakassi fyrir hina sköllóttu. Inniheldur skallakremið góða og skallasjampó.

    Stærsti kosturinn við skallakremið er að það dregur úr gljáa á skallanum. Auk þess er það nærandi og róandi fyrir erta húð. Hentar 0-3 mm.

    Skallasápan er sérstaklega hugsuð fyrir hið viðkvæma skallasvæði og inniheldur því mjög mild efni. Hún styður húðina í að græða sár (svo sem smáskurði eða rakstursbruna) og hefur róandi áhrif á húðina.

    Af hverju sérstakar vörur fyrir skalla?

    Höfuðleðrið er eitt viðkvæmasta húðsvæði líkamans og þegar vörnin sem hárið veitir er farin er enn frekari þörf á því að nostra við þetta svæði. Þá verður húðin ekki bara fallegri heldur líka heilbrigðari og þér líður betur á allan hátt!

Leit