Til að hafa flott skegg þarf að sinna því. Regluleg snyrting hjá rakara eða heima fyrir skiptir miklu máli en einnig dagleg umhirða. Gott getur verið að fara til rakara reglulega til að halda skegglínunni fallegri og á réttum stað þótt þú snyrtir það sjálfur heima þess á milli.
En hvaða efni á að nota í skeggið?
Skeggsápa
Fyrst og fremst þarf að þvo skeggið því skítugt skegg fer engum vel. Best er að nudda skeggsápunni í rót skeggsins og dreifa sápunni þaðan í restina af skegginu ef það er sítt.
Þarf ég í alvörunni sérstaka sápu fyrir skeggið? Við mælum allavega ekki með því að nota sjampóið sem þú notar í hárið fyrir skeggið. Flest sjampó sem eru hugsuð fyrir hárið eru gerð til að minnka olíu svo hárið líti ekki út fyrir að vera fitugt en hár á höfði þarf yfirleitt ekki jafnmikið af náttúrulegri olíu og skegghár til að viðhalda raka. Skeggsápa er hins vegar mildari og til þess gerð að minnka olíuna í húðinni rétt nógu mikið til að koma í veg fyrir stíflaðar svitaholur án þess að þurrka húðina upp og valda kláða.

Skeggolía
Húðin undir skegginu verður gjarnan mjög þurr, ekki síst þegar verið er að láta skeggið vaxa eftir rakstur. Skeggolía er fyrst og fremst hugsuð fyrir húðina undir skegginu sem verður gjarnan þurr. Því er mikilvægt að nudda olíunni vel í húðina og dreifa þaðan úr henni í skeggið. Við mælum með að nota frekar minna en meira til að byrja með (2-3 dropar duga oft) og bæta við ef þörf er á. Skeggolíur eru fyrir allar gerðir og síddir af skeggi! Olíurnar hjálpa til við að halda því fallegu og heilbrigðu.
Skeggolíu ætti að nota daglega og jafnvel tvisvar á dag.

!