Raksett - SOPHIST - Horn - Silvertip fiber hár

Eins og nafnið Sophist gefur til kynna er þessi lína frá Mühle fáguð og falleg enda löngu orðin klassísk.

Ósvikið horn hefur verið notað í skrautmuni um aldir. Vanda þarf til verka þegar horn er notað í muni sem þessa, allt frá því að velja vel þau horn sem henta yfir í að móta þau og fínpússa. Þar sem um náttúrulegan efnivið er að ræða er hvert sett einstakt þar sem litirnir flæða frá hvítu yfir í ljósbrúnan og áfram í dökk brúnan.

Hárin eru fínustu Silvertip Fiber hár, þróuð af Mühle, og flestir eru sammála um að séu ekki síðri fínustu greifingjahárunum. 

Fæst einnig með skál og með Silvertip greifingjahárum

Hér má sjá öll Sophist raksettin.

Sjá alla bursta með Silvertip fiber hárum og lesa nánar um kosti þeirra.

Leit