Safety Razor - R41 - Tortoiseshell - Rakvél

Mühle R41 rakvélarnar eru frábærar fyrir þá sem raka sig reglulega. Ekki bara hvað varðar gæði rakstursins, líka hvað varðar kostnaðinn við að raka sig.

R41 er með opinn kamb sem við mælum frekar með fyrir þá sem hafa reynslu af rakstri. Kosturinn við opna kambinn er að broddar og sápa loðir síður við blaðið og auðveldara er að hreinsa vélina eftir rakstur. Hentar einna helst þeim sem eru með þykkan og sterkan skeggvöxt. 

Þessi rakvél kemur í þremur mismunandi útfærslum:

Þessi venjulega kemur einnig í krómsvörtu, hvítu og rauðgylltu. Þessi er svokölluð þriggja hluta skafa.

Grande er eins og þessi venjulega en með lengra og breiðara skafti. Fæst eingöngu í chrome lit.

Twist er skafa sem er í tveimur pörtum og er botninn skrúfaður til að losa hausinn.

Tortoishell nafnið er vísun í þá litaflóru sem finna má á sumum skjaldbökum en skel þeirra var nokkuð algengur efniviður í rakbursta á árum áður. Þessi litur er því eins konar óður til fyrstu rakburstanna án þess að til þess séu notaðar skjaldbökur.

Tengdar vörur:
Statíf fyrir rakvél

Svartur bursti
Statíf fyrir bursta og sköfu

Leit