Safety Razor - R41 - TWIST - Rakvél

Mühle R41 rakvélarnar eru frábærar fyrir þá sem raka sig reglulega. Ekki bara hvað varðar gæði rakstursins, líka hvað varðar kostnaðinn við að raka sig.

R41 er með opinn kamb sem við mælum frekar með fyrir þá sem hafa reynslu af rakstri. Kosturinn við opna kambinn er að broddar og sápa loðir síður við blaðið og auðveldara er að hreinsa vélina eftir rakstur. Hentar einna helst þeim sem eru með þykkan og sterkan skeggvöxt. 

Þessi rakvél kemur í þremur mismunandi útfærslum:

Twist er skafa sem er í tveimur pörtum og er botninn skrúfaður til að losa hausinn. Fæst einungis í króm.

Minni þriggja hluta sköfur eru fáanlegar í krómsvörtu, hvítu, tortoiseshell og rauðgylltu

Grande er eins og þessi venjulega en með lengra og breiðara skafti. Fæst eingöngu í króm lit.

Tengdar vörur:
Statíf fyrir rakvél

Króm bursti
Statíf fyrir bursta og sköfu

Leit